{"title":"Grunnskólastjórar á öndverðri 21. öld: Hlutverk og gildi","authors":"Börkur Hansen, S. H. Lárusdóttir","doi":"10.24270/TUUOM.2018.27.6","DOIUrl":null,"url":null,"abstract":"Nútímakenningar um skólastjórnun beina kastljósinu m.a. að sýn skólastjóra á hlutverk sitt, þeim gildum sem hafa áhrif á starfshætti þeirra (Begley, 2004; Branson, 2005) og hvernig þeir forgangsraða verkefnum sínum. Á síðasta aldarfjórðungi hafa höfundar þessarar greinar rannsakað viðhorf skólastjóra í grunnskólum með spurningalistakönnunum, þ.e. 1991, 2001 og 2006 (Börkur Hansen, Ólafur H. Jóhannsson og Steinunn Helga Lárusdóttir, 2008). Hér er greint frá rannsókn á störfum skólastjóra sem gerð var 2017. Sjónum er beint að þeim gildum sem þeir segjast leggja mesta áherslu á og hvernig þeir forgangsraða helstu verkefnum sínum. Gögnum var safnað með spurningalista sem sendur var til allra skólastjóra í grunnskólum landsins vorið 2017. Dregin er upp mynd af aðstæðum í skólunum, þ.e. skólagerð, skólastærð og kennslufyrirkomulagi, og afstaða skólastjóra til mikilvægra gilda sem tengjast skólastarfi er könnuð. Einnig var athugað hvernig þeir forgangsraða verkefnum, svo sem vinnu við námskrárgerð, samskiptum við starfsfólk, nemendur o.fl. sem tengist störfum þeirra. Niðurstöður benda til þess að nokkurs ósamræmis gæti milli yfirlýstra gilda skólastjóra og raunverulegra. Greininni lýkur með samanburði við fyrri rannsóknir höfunda á forgangsröðun viðfangsefna skólastjóra og umræðum um gildi niðurstaðnanna.","PeriodicalId":40418,"journal":{"name":"Timarit um Uppeldi og Menntun-Icelandic Journal of Education","volume":" ","pages":""},"PeriodicalIF":0.3000,"publicationDate":"2018-12-21","publicationTypes":"Journal Article","fieldsOfStudy":null,"isOpenAccess":false,"openAccessPdf":"","citationCount":"2","resultStr":null,"platform":"Semanticscholar","paperid":null,"PeriodicalName":"Timarit um Uppeldi og Menntun-Icelandic Journal of Education","FirstCategoryId":"1085","ListUrlMain":"https://doi.org/10.24270/TUUOM.2018.27.6","RegionNum":0,"RegionCategory":null,"ArticlePicture":[],"TitleCN":null,"AbstractTextCN":null,"PMCID":null,"EPubDate":"","PubModel":"","JCR":"Q4","JCRName":"EDUCATION & EDUCATIONAL RESEARCH","Score":null,"Total":0}
引用次数: 2
Abstract
Nútímakenningar um skólastjórnun beina kastljósinu m.a. að sýn skólastjóra á hlutverk sitt, þeim gildum sem hafa áhrif á starfshætti þeirra (Begley, 2004; Branson, 2005) og hvernig þeir forgangsraða verkefnum sínum. Á síðasta aldarfjórðungi hafa höfundar þessarar greinar rannsakað viðhorf skólastjóra í grunnskólum með spurningalistakönnunum, þ.e. 1991, 2001 og 2006 (Börkur Hansen, Ólafur H. Jóhannsson og Steinunn Helga Lárusdóttir, 2008). Hér er greint frá rannsókn á störfum skólastjóra sem gerð var 2017. Sjónum er beint að þeim gildum sem þeir segjast leggja mesta áherslu á og hvernig þeir forgangsraða helstu verkefnum sínum. Gögnum var safnað með spurningalista sem sendur var til allra skólastjóra í grunnskólum landsins vorið 2017. Dregin er upp mynd af aðstæðum í skólunum, þ.e. skólagerð, skólastærð og kennslufyrirkomulagi, og afstaða skólastjóra til mikilvægra gilda sem tengjast skólastarfi er könnuð. Einnig var athugað hvernig þeir forgangsraða verkefnum, svo sem vinnu við námskrárgerð, samskiptum við starfsfólk, nemendur o.fl. sem tengist störfum þeirra. Niðurstöður benda til þess að nokkurs ósamræmis gæti milli yfirlýstra gilda skólastjóra og raunverulegra. Greininni lýkur með samanburði við fyrri rannsóknir höfunda á forgangsröðun viðfangsefna skólastjóra og umræðum um gildi niðurstaðnanna.